Get Started. It's Free
or sign up with your email address
Tölvuleikir by Mind Map: Tölvuleikir

1. Kostir við tölvuleiki?

1.1. Rannsóknir sýna að leikmenn sem spila tölvuleiki hafa betri samhæfingu augna og handa ásamt betri samhæfingu miðtaugakerfisins og vöðva, sem leiðir af sér betra þol fyrir truflunum og talningu hluta sem eru sýnd í skamman tíma, heldur en þeir sem spila ekki tölvuleiki. Í bók Steven Johnson, Everything Bad is Good for You, færir hann rök fyrir því að tölvuleikir séu erfiðari en hefðbundin spil. Tölvuleikir halda aftur mikilvægum upplýsingum svo að leikmaðurinn þarf að átta sig á umhverfi leiksins. Flestir leikir gera kröfu um mikla athygli og þeir fresta ánægju mun lengur en aðrar skemmtanir. Leikmenn eru með einbeitt viðhorf gangvart tölvuleikjum. Einbeitingin er það mikil að þeir glíma við vandann án þess að átta sig á því að þeir séu að læra í leiðinni. Ef að sama viðhorfið gæti verið yfirfært yfir á skólana þá myndi menntun þeirra verða mun betri. Með því að leysa þrautir leikja læra þær og það eflir skapandi hugsun.

2. Gagngrýni tölvuleikja

2.1. Gagnrýni tölvuleikja beinist að fíkniefnum, ofbeldi, áróðri og orðbragði leikjanna. Rannsóknir hafa sýnt að tengsl eru á milli ofbeldisfullra leikja og árásarhneigðar. Rök eru færð fyrir því að tölvuleikir séu miðill sem einstaklingar geti lært af og hermt eftir í daglegu lífi. Nokkur samtök flokka tölvuleiki eftir aldri, eins og PEGI sem flokkar leiki í Evrópu og þar á meðal á Íslandi. Þessi samtök eru ýmist í einkaeigu eða í eigu ríkisins. Flestir leikir birta einkunn sína á framhlið vörunnar, en margir foreldrar eru óupplýstir um þessar merkingar.

3. Hvað eru tölvuleikir?

3.1. Tölvuleikur er hvers kyns leikur sem leikinn er í tölvu eða leikjatölvu. Þeir eru margs konar; spilakassaleikir, sjónvarpsleikir, textaleikir, netleikir og herkænskuleikir hafa t.d. verið vinsælar tegundir. Upp á síðkastið hafa tölvuleikir í auknum mæli verið notaðir til auglýsinga og í stafrænni list.

4. Stjórntæki tölvuleikja

4.1. Það fer eftir gerð leiks og á hvernig tölvu hann er spilaður , hvernig stjórntæki eru notuð. Í venjulegum heimilistölvum er oft notast við lyklaborð, mús eða bæði lyklaborð og mús í einu. Á heimilistölvum er einnig hægt að kaupa sérstaka stýripinna fyrir leiki og eru sérhannaðir stýripinnar fyrir flugherma og bílaleiki þónokkuð algengir. Á leikjatölvum er langalgengast að notast sé við sérstaka stýripinna sem eru sérhannaðir fyrir hverja tölvu og fylgja þá oft með tölvunni sjálfri. Fyrstu leikjatölvurnar notuðust við lyklaborð og einfalda stýripinna en eftir því sem leikjatölvurnar þróuðust hurfu lyklaborðin smám saman. Stýripinnar fyrir leikjatölvur hafa þróast mikið frá upphafi og með hverri kynslóð af leikjatölvum koma oftast einhverjar nýjungar fram á sjónarsviðið. Á leikjatölvum er einnig hægt að kaupa sérhannaða stýripinna sem oft eru sérhannaðir fyrir sérstaka leiki. Í skotleikjum á borð við Duck Hunt og House of the Dead 2 er notast við sérstakar tölvuleikjabyssur og í leiknum Guitar Hero er notast við sérstakan tölvuleikjagítar.

4.2. Tölvuleikir eru spilaðir á ýmiskonar vélbúnaði. Algengustu gerðir eru heimilistölvur eða leikjatölvur. Aðrar gerðir af vélbúnaði eru handleikjatölvur eins og Nintendo DS leikjatölvan eða spilakassar sem eru sérstaklega hannaðir til þess að spila tölvuleiki. Á síðustu árum hefur sú þróun átt sér stað að raftæki sem áður fyrr notuðust ekki við hugbúnað hafa í sífellt meiri mæli notast við hugbúnaðarlausnir. Þar af leiðandi er hægt að spila tölvuleiki á enn fleiri miðlum en áður. Sem dæmi um vélbúnað sem getur spilað tölvuleiki en er ekki sérhannaður til þess eru farsímar, lófatölvur, grafískar reiknivélar, GPS-tæki, MP3-spilarar, stafrænar myndavélar og úr.

5. Flokkar

5.1. Tölvuleikir eru eins og bækur, bíómyndir og tónlist oft flokkaðir niður í mismunandi gerðir. Algengast er að flokka tölvuleiki eftir því hvernig þeir eru spilaðir líkt og í ævintýraleiki, skotleiki, bardagaleiki og þrautaleiki. Til eru margir undirflokkar og hægt er að setja suma leiki í marga flokka á meðan erfitt er að flokka aðra. Sem dæmi um tölvuleik sem hægt væri að flokka á marga vegu er leikurinn Doom 3. Hann er fyrst og fremst fyrstu persónu skotleikur en einnig væri hægt að flokka hann sem hryllingsleik.

6. Félagsleg áhrif tölvuleikja